Heildarlausn

Heildarlausn fyrir þitt fyrirtæki

Iceland Travel býður fyrirtækjum, stofnunum og samtökum aðgengilega og hagkvæma þjónustu sem snýr að öllu utanumhaldi á helstu viðburðum, svo sem ráðstefnur, fundir, móttökur, hátíðarkvöldverðir, ferðir erlendis og innanlands, hvata- og skemmtiferðir, sem og alla aðra þætti sem falla undir viðburðaskipulag. Við störfum náið með viðskiptaferðum VITA og höfum þannig aðgang að flugmiðum og gistingu víðsvegar um heiminn á betri kjörum.

Helstur kostir þess að velja Iceland Travel:
  • Góð samningsstaða við birgja
  • Góður aðgangur að gistingu og veitingaþjónustu
  • Bóka sali fyrir fundi og ráðstefnur
  • VIP ferðir
  • Umsjón með hátíðarkvöldverðum (Gala Dinner).
  • Úrval af sérsniðnum hvata- og skemmtiferðum
  • Bóka flug, gistingu og fundaraðstöðu erlendis
  • Árshátíðir
  • Starfsmannaferðir
  • Umsjón með hljóð og myndkerfum
  • Við notum öflugt tölvu- og skráningarkerfi
  • Tækniþjónustu
  • Skemmtiatriði og hljómsveitir
  • Og margt annað
Þinn ávinningur: 

Öruggur aðgangur að fulltrúa Iceland Travel og VITA ásamt allri þeirri þjónustu sem við bjóðum. Kosturinn er að hafa aðgang að mikilli fagþekkingu og reynslu. Við setjum metnað okkar í að kynnast fyrirtækinu þínu og einsetjum okkur að vinna í samræmi við það. Á meðan við undirbúum og skipleggjum viðburðinn, getur ykkar starfsfólk notað sinn dýrmæta tíma í að sinna þeim verkefnum sem ætlast er til af þeim.