Ráðstefnur og fundir
TRAUST - ÁREIÐANLEIKI - FAGMENNSKA
Ráðstefnur og fundir eru mikilvægur þáttur í samskiptum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka. Undirbúningur og skipulag ráðstefnu er flókið og vandasamt ferli, huga þarf að mörgum ólíkum þáttum til að árangurinn verði í samræmi við væntingar.
Iceland Travel ráðstefnur og fundir hefur sérhæft sig í að skipuleggja, undirbúa og halda utan um ráðstefnur og fundi. Þjónusta ráðstefnudeildar tryggir eins og kostur er hnökralausa framkvæmd, sparar skipuleggjendum ráðstefnu ómælda vinnu og tíma og gefur þeim kost á að sinna faglega þættinum. Þegar skipuleggja þarf ráðstefnu eða fund er að mörgu að hyggja.
- Bóka flug
- Bóka gistingu
- Bóka fundarstað
- Auglýsinga- og bæklingagerð
- Prentun - Dagskrá
- Tækniþjónustu
- Akstur
- Skoðunarferðum/makaferðum
- Afþreyingu
- Aðstoð við heimasíðu
- Gestafyrirlesurum
Ykkar árangur er okkar markmið.





