Fjármál

Fjárhagsáætlun: Fyrstu drög eru unnin í upphafi samstarfs og endurskoðuð reglulega

Bókhald ráðstefnu/viðburðar: Bókhald færist hjá Iceland Travel ráðstefnum. Greiðslur,sem berast frá þátttakendum vegna þátttökugjalds, fara inn á sérstakan reikning viðburðar

Uppgjör: Lokauppgjör þátttakenda vegna þátttökugjalda og hótelgistingar fer fram eigi síðar en fjórum vikum fyrir upphaf ráðstefnu.

Sé þess óskað leggur Iceland Travel ráðstefnur út fyrir ákveðnum undirbúningskostnaði, t.d. vegna prentunar, póstburðargjalda, starfsmannapassa o.fl. án vaxtagjalda. Þetta miðast við að þátttökugjald berist til Iceland Travel ráðstefnudeildar.