Þjónusta

Við skipulagningu ráðstefna og funda þarf að huga að mörgum ólíkum þáttum

Iceland Travel býður heildstæða þjónustu við skipulagningu ráðstefna og funda. Í þeirri skipulagningu

felst ýmislegt. Í upphafi hvers verkefnis er unnin framkvæmdaráætlun í samstarfi við fyrirtæki/undirbúningsnefnd. Þar er farið yfir þær þarfir sem verkefnið krefst. Á meðal þess sem taka þarf tillit til er eftirfarandi:
  
Aðstaða

Umsjón og bókanir á:

  • Gistirými
  • Húsnæði fyrir ráðstefnu, fund, viðburð o.fl.
  • Húsnæði fyrir sameiginlegar máltíðir og skemmtanir
  • Tækniaðstoð, sýningartækjum og annarri tækniþjónustu

Iceland Travel hefur aðgang að fullkomnu skráningarkerfi sem viðskiptavinum okkar gefst kostur á að nota fyrir hverja ráðstefnu eða viðburð. Kerfið heldur utan um allar skráningar og auðveldar öll samskipti viðburðarhaldara sem og þátttakenda.

 


Veitingar og skemmtanir
  • Skipulagning sameiginlegra máltíða
  • Útvegun listafólks vegna skemmtiatriða

 

Dreifing, bókun og staðfesting
  • Dreifing á öllu efni fyrir viðburð til væntanlegra þátttakenda sem og annarra sem henni tengjast

  • Bókun á viðburð, rafræn skráning í okkar umsjón
  • Staðfestingar til þátttakenda sem og önnur upplýsingagjöf til þeirra

  
Upplýsingaþjónusta ráðstefnudagana
  • Umsjón með skrifstofu viðburðar
  • Afhending ráðstefnugagna
  • Almenn upplýsingaþjónusta
  • Umsjón með að öll gögn, sem á þarf að halda og óskað er eftir, séu til staðar

 
Umsjón útdrátta
  • Móttaka og skráning útdrátta á rafrænan hátt
  • Umsjón með uppsetningu og prentun