Viðburðir
Öflugt markaðstæki
Viðburðarstjórnun er eitt af öflugustu markaðstækjum samtímans, óháð stærð fyrirtækis eða fjölda starfsmanna. Öll fyrirtæki, stofnanir og samtök, innihalda einhverskonar viðburði, hvort sem er fyrir starfsmenn eða viðskiptavini.
Hvað er viðburðarstjórnun?
Hvort sem um er að ræða að kynna nýja vöru, nálgast viðskiptavininn, afla nýrra viðskiptavina, efla starfsandann í fyrirtækinu, halda minni eða stærri ráðstefnur og fundi, halda borgar- eða bæjarhátíð, þá er viðburðarstjórnun góð leið til að ná markvissum árangri. Viðburðarstjórnun veitir meiri stjórn á upplýsingaflæði til neytandans og hægt er að fylgja hverju smáatriði mun betur eftir undir eigin eftirliti.
Dæmi um viðburði:
- Kynna nýja vöru/framleiðslulínu
- Blaðamannafundir
- Fyrirtækjafundir og ráðstefnur
- Móttaka erlendra gesta
- Árshátíðir og hvataferðir starfsmanna
- Hönnunarsýningar
- Opnunarhóf
- Tónleikar
- Verðlaunaafhendingar
- Tískusýningar
- Forsýningar
- Brúðkaup






